17th Edition of Skjaldborg

Skjaldborg is the Icelandic documentary film festival, is the only specialised platform for the premiere of Icelandic documentaries and it is fair to say that Skjaldborg cinema and, hence, Patreksfjordur have become the home of the Icelandic documentary scene. Skjaldborg is held annually in Patreksfjörður, West fjords, during the Whitsun weekend (a long weekend in the Icelandic holiday calendar). Experienced documentary filmmakers, newcomers to the scene, documentary buffs and the general audience members all contribute to a vibrant and creative discourse that enhances the development of the Icelandic documentary scene and its mediation platforms.

Skjaldborg offers a packed program outside the cinema with dinners, parties and general fun and games unique to the festival from morning to evening. The surrounding environment, the festival guests and the local inhabitants have joined in creating a unique intimate setting and ambiance which characterizes the reputation of the festival.

// ICELANDIC
Skjaldborg í sautjánda sinn!

Skjaldborg er hátíð íslenskra heimildamynda, haldin um hvítasunnuhelgi ár hvert í Skjaldborgarbíói á Patreksfirði. Skjaldborg er eina kvikmyndahátíðin á landinu með það sérsvið að frumsýna íslenskar heimildamyndir og er óhætt að segja að Skjaldborgarbíó og Patreksfjörður séu orðin að heimili íslenskra heimildamynda. Hátíðin leiðir saman reynslubolta í faginu, byrjendur og hinn almenna áhorfanda en þannig stuðlar hátíðin að skemmtilegu og skapandi samtali sem gegnir mikilvægu hlutverki fyrir þróun og miðlun íslenskrar heimildamyndagerðar.

Fagurt umhverfi Patreksfjarðar veitir einstaka umgjörð um hátíðina og plokkfiskveisla, skrúðganga og limbókeppni er meðal þess sem heldur uppi hinum einstaka Skjaldborgaranda.

The Icelandic documentaries premiering at the festival compete for the the coveted audience award Einarinn and Ljoskastarinn, the grand jury award. The jury also selects a special mention.

// ICELANDIC
Þær íslensku heimildamyndir sem sýndar eru á hátíðinni keppa um tvenn verðlaun; áhorfendaverðlaunin Einarinn, sem hafa verið veitt frá upphafi, og dómnefndarverðlaunin Ljóskastarann. Einnig veitir dómnefnd hvatningarverðlaun.

ENGLISH
Skjaldborg premiers Icelandic documentaries with the aim to support the development of the Icelandic documentary scene. The two categories are Documentary Premiere and Work in Progress. The Skjaldborg selection committee and the programme board of Skjaldborg will evaluate the eligibility of submissions.

DOCUMENTARY PREMIERE
Eligible films for Skjaldborg 2024 are:
- Icelandic documentaries which have not been screened publicly in Iceland and will not be screened before the completion of the Skjaldborg festival 2024
- Documentaries that count as Icelandic production.
Note! The festival also considers documentary films made by foreign documentary filmmakers which touch on Icelandic subject matter but those films are not eligible for the competition.
The applicant is reliable for submitting correct information about the film.
The applicant is reliable for correct information about the premiere status of the film and that it has not been publicly screened in Iceland. The applicant is reliable for informing Skjaldborg if the premiering status of the film changes before the completion of the festival 2024.

WORK IN PROGRESS
Work in Progress is a forum where documentary filmmakers can present work which are still in progress. The film can be at any state in the production process as long as some film material is presented. Films can only be presented once at Skjaldborg Work in Progress, unless major concept changes have been made between Skjaldborg editions.
The applicant is reliable for submitting correct information about the film.
The applicant is reliable that the film has not been presented before at Skjaldborg Work in Progress, in which case the applicant provides a reasoning for re-submitting the film for the Work in Progress programme.

// ICELANDIC
Skjaldborg frumsýnir íslenskar heimildamyndir og hefur það að markmiði að styðja við íslenska heimildamyndagerð. Hægt er að sækja um í tveimur flokkum, frumsýning á heimildamynd eða verk í vinnslu. Dagskrárstjórn Skjaldborgar og valnefnd 2024 leggja mat á gjaldgengi umsókna.

FRUMSÝNING
Gjaldgeng til frumsýninga 2024 eru verk sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Heimildamyndir sem ekki hafa verið sýndar opinberlega á Íslandi og munu ekki verða sýndar áður en Skjaldborg 2024 er lokið
- Heimildamyndir sem teljast íslensk framleiðsla
ATH! Hægt er að sækja um fyrir erlendar myndir sem fjalla um íslensk málefni en þær myndir eru ekki gjaldgengar í keppni.
Forsvarsaðili umsóknar ábyrgist að upplýsingar í umsókn séu réttar.
Forsvarsaðili umsóknar ábyrgist að heimildamyndin hafi ekki verið sýnd opinberlega á Íslandi og það er á ábyrgð umsækjanda að tilkynna Skjaldborg ef breyting hefur orðið á frumsýningarstöðu myndar í aðdraganda hátíðarinnar.

VERK Í VINNSLU
Verk í vinnslu er vinnustofa þar sem höfundum gefst kostur á að kynna verkefni sem eru enn í vinnslu. Verkin geta verið á hvaða stigi sem er en þurfa að hafa kvikmyndaefni til kynningar. Verkefni getur einungis einu sinni verið valið í flokkinn Verk í vinnslu, nema á því hafa orðið grundvallarbreytingar frá fyrri kynningu.
Forsvarsaðili umsóknar ábyrgist að upplýsingar í umsókn séu réttar.
Forsvarsaðili umsóknar ábyrgist að verkið hafi ekki verið kynnt sem verk í vinnslu á Skjaldborg áður, og leggur fram röksemdafærslu sé þess óskað að verkefni verði kynnt á nýjan leik
Valnefnd og stjórn Skjaldborgar leggja mat á vafaatriði sem kunna að koma upp.

Overall Rating
Quality
Value
Communication
Hospitality
Networking
  • All in a great festival and the organizers are lovely and helpful.
    I have twice shown my work there and I hope there will be a third time sometime in the near future. Definatly apply if you can.

    June 2023